Fílabrandarar :)Jara
Afhverju er fíllinn stór, grár og krumpaður???Ef hann væri lítill, glær og glansandi væri hann lýsispilla :P :D
Hahahahahahaha :D
Já ég nenni semsagt ekki að blogg en það er alveg löngukominn tími á blogg á þessu heimili.
Það er geggjað veður og mig langar mest bra að sitja með henni Huldu minni fyrir utan Laugabæ og drekka einn kaldan einsog við gerðum alltaf í fyrra!!! Ohh það var sweet :)
Svo á hún Hlín mín ammli á morgun :) þá verður hún eldgömul 22 ára :P haha
Allvega þá nenni ég ekkert að blogga meira en ættlað setja sona 2 fílabrandara hérna just 4 the fun :D
Hvað kallaru fíl sem ferðast með strætó?
Farþega :D
Hvað gerist þegar fíll stekkur út í sundlaug?
Hann blotnar :D
Hahahahaha :D shit hvað ég er með mikinn aulahúmor.. allaveg...
Adios
Jara ofurfyndna :D
Ömurlegasti dagur í heimi!!!Jara
Já í gær var sko án efa ömurlegasti dagur í heimi!!!Hann byrjaði þanniog að ég vakknaði um 7 tilað skuttla Jóni Þór í vinnuna og þá var ég nú orðin hálf slöpp eikkað. Fór aftur að sofa og vakknaði um 9 lasinn!!! Sem var bara glatað. Þannig ég var bara heima, alein með ekkert að gera.
Um 12 fór ég svo niðrá Glerártorg að ná í Jón Þór í hádegismat því ég var með bílinn, ég beið í sona korter þegar ég komst að þvíað hann hlyti að vera í mat kl 1 (hann gleymdi símanum heima þannig ég gat ekkert heyrt í honum) Þá hringdi ég í Þóru og hún var algjört æði og skuttlaði mér heim og ég skildi bílinn ettir. Svo þegar ég kom heim var ekkert í sjónvarpinu og það skást var american pie presents the band camp Og ég actually horfði á hana!!! Ætti að sýna hvað mér leiddist.
Svo kom Jón Þór heim í kaffinu kl 4 með þær fréttir að hann yrði að vinna til 11 um kvöldið!!! Þannig ég þurfti að vera meira ein með ekkert að gera.
Okey svo um kvöldmaarleitið ákvað ég úrþví ég var ein að fá mér bara klemmubrauð, nennti ekkert að elda handa bara mér. Okey ég næ í klemmujárnið og sting því í samband og næ svo í brauð og ættla að ná í ost en nei þá var hann búinn!!!! Okey ég ákveð að fá mér bara ristað brauð með smjöri. Flott, ég set brauðið í ristina og bíð og svona. Svo kemur brauðið upp og neinei var þá ekki helv brauðið MYGLAÐ!!! Ohh ég var bara of pirruð. Þetta endar svo þannig að ég neiðist til að elda mér ein. Svo þegar ég er búin að elda og ættlað farað fá mér kók ÞÁ VAR KÓKIÐ LÍKA BÚIÐ!!!!! Þetta var sko ekki minn dagur!!!! Jara reið!!!!
Fyrir utan þennan glatað dag er akureyri bara alveg ferlega fín. Við Jón Þór fórum í leikhús á fló á skinni á föstudaginn go hlógum mikið :D
Á laugardaginn kom Hlín til mín um 8 leytið og við vorum með osta og salat og rizkex og rauðvín og hvítvín og höfðum það svona líka ferlega nice :D Bara spjalla og sötra og borða :D:D:D svo kíktum við niðrá amour og þar var þessi fína trúbbastemming og við vorum alveg að fíla okkur :)
Svo næstu helgi verður konukvöld á amour og við Hlín munum sko mæta hressar þangað að horfá slökkvuliðsgaura í tískusýningu :D
Adios
Jara reiða :p
Laugafílingur og tónkvíslinJara
Jæja... Það er ekkert rosalega mikið búið að gerast hérna, fór á laugar á Laugardaginn og vá hvað ég sakkna þess að vera þarna!!! Ég elska Laugar!!! Chillaði með Rán og Kristínu smá en kristín var að æfa fyrir tónkvíslina þannig ég gat ekki verið voðalega mikið með henni...Svo í gær fór ég á tónkvíslina með Tinnu og Jóa. Hún var ótrúlega flott og flott atriði, það var enginn svona geðveikt lélegur einsog stundum hefur verið. En mér fannst flestir vera bara ferlega fínir. Þetta var bara mjög flott!!! Hjalti vann og átti hann það alveg skilið því þetta var geggjað flott hjá honum. Kristín mín var líka ótrúlega flott á sviðinu.
Svo á morgun er ég að fara að byrja að vinna í 66°norður og heldað það verði bara fínt sko.
Annas er ekkert meira að frétta so
Adios.
Jara bollugerðameistari :DJara
Já ég er bolligerðameistari. Í gær bakaði ég helling af bollum með sultu og rjóm og Jón Þór gerði geggjað heitt súkkulaði og við héldum þetta fína bollukaffi, buðum Hlín og gunna, Tinnu Konna og Ása. Ási var pooper og þurfti að fara á fótbolltaæfingu en þá var bara meira fyrir okkur :D haha :DAnnas er bara lítið að frétta. Það var tekið gott djamm á föstudeginum og dansað mikið :D en svo á laugardeginum var mikil þynka í gangi þannig við gerðum ekki neitt nema horfa á tv og sona. Það vara ferlega cozy. :D
Já það er allt í snjó hérna og ég hef ekkert meira að tjá mig um so...
Adios Jara bollugerðameistari
Jara ofurhúsmóðirJara
Jæja þá er maður bara komin til akureyrar og þetta er alveg ferlega fínt.Íbúðin er voðalega cozy, ný eldhúsinnrétting, ný eldavél og ofn og baðherbergið nýuppgert. Eða lítur allavega þannig út. Þetta er alveg ferlega fínt.
Sambúðin er bara búin að ganga ferlega vel þessa 3 daga. Erum búin að elda okkur heim og vaska alltaf upp eftir matinn strax. Það er bara of mikill dugnaður í gangi :):)
Á laugardaginn komu svo Ási, Kolli og Jóndi í heimsókn og það var sötrað pínu öl og spilað trivial genius útgáfan. Hver vann skiptir ekki máli en hinnsvegar er annaðsætið það sem skiptir máli!! Það var bara engin annar en ég sem lenti í öðrusæti.. hefði pottþétt unnið ef kolli hefði ekki unnið.. hann var í gettu betur þannig það er ekkert að taka mark á því :p
Svo bara til að segja ykkur hvað ég er mikil ofurhúsmóðir!!! Jón Þór fór inn á laugar í dag eikkað að brasa þannig ég vaskaði bara upp eftir morgunmatinn og þurkaði og sópaði síðan gólfin aðeins. Svo kom hún Þóra mín í heimsókkn og ég bauð uppá kaffi í bolla með undirskál í stíl :D:D svo eftir að Þóra fór vaskaði ég aftur upp.
Svo hringdi Jón Þór í mig og sagði mér að hann væri að leggja af stað og hvað haldiði að ofurhúsmóðirinn hafi gert, ég eldaði mat og hann var tilbúin á borðinu akkurat þegar hann kom heim!!! Þvílíki dugnaðurinn!!! Svo er Jón Þór núna að horfá Liverpool tapa (vona ég, liverpool suckar) og ég ættla bara að taka því rólega og horfa á blood dimond.
Adios
Jara ofurhúsmóðir
Jæja...Jara
Jæja, komin tími á smá blogg.Eftir viku er ég að farað flytja til Akureyra með honum jóni Þór mínum :D Það verður geggjað :D Við erum komin með íbúð niðrá göngugötu þannig við erum bara downtown :p
Íbúðin kemur með öllum húsgögnum og hita og rafmagni og neti þannig við þurfum ekki að hafa áhyggjur af neinu :D:D Þetta verður osom :)
Svo erum við Hlín búnar að plana spilakvöld og svona cozy :D Svo ættlum við Þóra að mála bæinn rauðan :D:D haha þetta verður æðislegt :D:D
Svo ættla ég að vera duglega að fara í heimsókkn inn á laugar að hitta Rán og Kristínu :D og þær eiga að vera duglegar að koma í heimsókkn til mín á spilakvöld :p hey Kristín það verða engin kerti nálægt :p:D
Ég ættla líka ða vera húsmóðir og við ættlum að vera dugleg að elda heima og ég ættlað baka :D:D Ohh mig hlakkar svo mikið til!!!
Annas er ekkert annað í fréttum.. nema um dagin var ég að vinna til 23 sem eru ekkert merkilegar fréttir nema þegar ég var á leiðinni heim stoppaði ég á N1 og læsti helv bíllykilinn inn í bílnum
hversu mikill sauður getur maður verið!!! En hún Íris mín var hetjan mínog kom á silvurlitaða fáknum með lykil til að opna :D Íris þú ert hetjan mín :*:*Já uuuu ég eilega hef ekkert meira að segja so..
Adios
Gleðilegt nýtt ár :)Jara
Jæja.. þá er bara komið nýtt ár á morgun og þá er náttlega alveg tilvalið að fara yfir árið!!! :)Allright, árið var boðið velkomið með stæl í áramótapartyi hjá Ölmu, var það bara án efa besta áramótaparty ársins :) Fyrsti dagur ársins var svo haldin hátíðlegur uppí sófa hjá ölmu með mikilli þynku :) That's the way 2 start a new year :p það allavega fer ekki versnandi eftir að þynkan er farinn :)
Svo var hadlið aftur á Laugar þar sem ég lenti í nó af ævintýrum með stelpunum mínum :) kvikmyndafélagið Orfin var stofnað og við bjuggum til alveg frábæra mynd :) revenge of the orfins! :)
Það var mikið djammað upp í laugabæ eftir leiksýningar og það var sko djamm :):) Laugabær fær án efa verðlaunin fyrir besta og skemmtilegasta vinnustaðinn með bestu og skemmtilegustu yfirmönnum :) Og að sjálfsögðu besta og skemmtilegasta starfsfólið :p
Við lentum í allskonar bílaævintýrum sem skemmtilegra er að fara ekki útí hér :p
Svo kom vorið og ég útskrifaðist sem stúdent frá Framhaldsskólanum á Laugum. Ég fór að gráta. Mér fannst ekkert gaman að verða að hætta en jæja...
Svo um sumarið átti ég krúttlegustu og sætustu og bestu íbúð í heiminum. Hún var niðrá seljavegi og ég var bara eilega alltaf þar og stelpurnar voru eilega alltaf hjá mér!! :):) Þetta var góð íbúð og ég sakkna hennar sárt.
Um sumarið skelltum við stelpurnar okkur svo á Stykkishólm. Þar gistum við í þessu líka ferlega fína hús sem frænka hennar Ölmu á með potti útí garði sem snýr að sjónum og enginn sér inní garðin :) Við elduðum þennan líka fína mat og borðum einsog siðmenntað fólk, svona flestar :p svo var drukkið og farið í pottinn :) Svo fórum við í party á Stykkishólmi sem var bara ferlega fínt :) :)
Svo kom verslunnarmannahelgin og þá var farið á akureyri og málað bæinn rauðan :) skoðaði cozy íbúðina hjá Hlín og Gunna og vígði sturtuna þar :):)
Svo kom 1 sept og ég og Jón Þór héldum til Tenerife í spænskuskóla. Það var bara gaman. Þar kynntumst við alveg helling af fólki, lærðum spænsku og drukkum bjór :P Við kinntumst kakkalökkum og komumst að því að þeir eru ekki fyrir okkur :p Þetta voru voðalega fínir 2 og hálfur mánuður hjá okkur, sleiktum sólina og workuðum tanið :) Svo fór ég í skemmtiferðarsiglingu með mömu og litlu frænkum mínum ummiðjarðarhafið. Það var osom!!! :):) Við sáum svo mikið og skipið var svo flott og svo góður matur :):)
Svo fórum við Jón Þór til fuerteventura að vinna á hótlei en vorum ekki að fíla það þannig við flugum til mömmu í danmörku og vorum þar í þrjá daga að klárað eyða þessum litlu peningum sem við áttum ettir :p
Eftir að við komum heim fór ég að vinna í Just4Kids sem er bara voðalega fínt. Það var líka voðalega gott að koma heim attur og hitta stelpurnar :):) Svo bara komu jólin og ég fékk helling af skemmtilegum gjöfum og þakka ég kærlega fyrir þær :*:*
Já það er þetta eilega allt held ég. Gleðilegt nýtt ár allir og takk fyrir árið :*:) Love you all :*:)
Jara
Gleðileg jólJara
Gleðileg jól
Jæja kannski komin tími á smá blogg... Jólin eru búin að vera ferleg fín, skemmtilegar gjafir og góður matur :) mmmmmm :) en núna er ég lasin og hef ekkert að gera. Er að horfá neighburs og ég hef ekki hugmynd um hvað er í gangi :s hmmm æji ég er ekki alveg að nenna að blogga so ég kem bara með eikkað meira á næsta ári....
Glataður yfirmaður!!!Jara
Ég er án efa með VERSTA yfirmann í HEIMI!!! Okey á miðvikudaginn sagði yfirþjónnin við okkur að við værum í fríi á laugardag og sunnudag, við vorum náttlega ferlega sátt við það.HELGARFRÍ :):) En neinei svo í dag situm við bara í rólegheitum að borða hádegismat. Kemur ekki gæjinn inn, beint til okkar og segir geggjað reiður"er ekki allt í lagi?"
"ha..? jújú" svörum við.. ekki alveg að skilja.
"eru þið veik eða eikkað?"
"haa? nei"
"akkru komu þið ekki í vinnuna í morgun? það var verið að bíða eftir ykkur"
Við eikkað "ha? við eigum að vera í fíi í dag sko.. okkur var sagt að við ættum frí um helgina"
"hver sagði það við ykkur?"
"yfirþjónnin hann sagði okkur það, frí á laugardag og sunnudag"
"ha? hvað heitir hann, þið verðið að vita hvað hann heitir, akkru viti þið ekki hvað hann heitir? ég ættla að tékka á þessu"
Svo ríkur hann bara út. Okkur fannst þetta nú algjör óþarfi sko, svona beint fyrir framan alla sem við vinnum með, gat hann ekki beðið okkur að koma og tala við sig þegar við vorum búin að borða eða eikkað?!!! neinei bara svona fyrir framan alla!!!
Hvernig áttum við að vita þetta, við höfum ekki fengið neina vaktartöflu eða neitt, okkur var ekki sagt neitt eða neitt.
Þessi gæji er svo glataður og hallarislegur. Hann heldur að hann sé svo yfir alla hafin og að hann sé svo frábær!!! Er hann ekki að fatta að án starfsfólksins væri hann ekki yfirmaður þess og hann væri ekki í þessari stöðu án þess!!! Hann er ekki að sjá það að það erum við (starfsfókið) sem gerum gestina glaða. Kokkarnir elda góðan mat, við tökum diskana þeirra, færum þeim drykki, dekkum borðin, höldum salnum hreinum
og brosum til viðskpitavinana og gerum allt sem við getum fyrir þá. Hann gæti það sko ekki...Svo eftir matin þegar við erum að dekka salin fyrir morgunmatin svo allt sé klárt kemur hann og hótelmanegerin og setjast niður að borða. Það er annar salur fyrir aftan, nei þau geta ekki setið þar!! þannig við þurfum að bíða meðan þau klára að borða svo við getum klára vinnuna okkar!!! Þessi gæji á bátt og það mikið.
Fyrsta dagin okkar fáum við 2 lykla að herberginu okkar, fínt. Svo fer hann með okkur að éta og fær annan lykilin til að fara emð rúmföt inn í herbergið okkar og segist ættlað skila honum strax aftur. Við erum ekki ennþá búin að fá þennan lykil!!! Svo vantaði sturtuhengi inn í herbergið okkar þannig við báðum um það og hann sagði ekkert mál. 2 dögum seinna svorum við ekki ennþá komin með sturtuhengi. Töluðum við annangaur og fengum það strax.
Svo sagði hann við okkur fyrsta daginn að við ættum að hitta hann kl 11 í lobbyinu og hann ættlaði að kynna okkur fyrir yfirkokkinum og sýna okkur hótelið og svona. Jájá fínt, vð vorum mjög sátt við það. Við mætumsvo upp í lobby 5 mín í 11, til að vera stundvís svo bíðum við og bíðum og bíðum.. þegar klukkan er orðin 20 mín yfir förum við að tala við gelluna í lobbyinu og hún ættlar að kalla í hann. Svo 5 mín seinna kemur eikkur annar gaur og segir okkur að Javier sé ekki hérna og hann viti ekkert, hann gefur okkur kók og fer með okkur í þvottahúsið og sýnir okkur hvert við förum í vinnuna. Svo segir hann okkur bara að skoða okkur um. Seinna um daginn
hittum við svo Javier og hann segir, reddaðist þetta ekki í morgun, ég var ekki hérna. Það er náttlega bara dónaskapur að láta engan vita og senda ekki eikkurn anna!!! Vá þessi gæji er bara glataður!!!
Adios
Jara reiða
Ísland best í heimi!!!Jara
Sko á þessu ferðalagi mínu er ég búin að komast að því að Ísland er best í heimi, þetta er ekki bara töff slagorð hjá Thule. Afhverju er Ísland best í heimi? Hérna eru nokkrar ástæður:
Við erum með bestu mjólkurvörur í heimi, besta vatnið (hreint kranavatn) besta hráefnið í allt, besta nammið, besta sætabrauðið, hreint loft, það er hægt að redda öllu, ekkert endalaust vesen, þú kemst auðveldlega milli staða, þú veist hvernig hlutirnir virka og við ættlumst ekki til þess þegar við erum í útlöndum að ALLUR heimurinn tala íslensku!!! Sæi það fyrir mér ef við mundum alltaf ættlast til þess að þjónnin á veitingastaðnum/hotelinu/barnum í útlöndum talaði íslensku!!! Akkru geta þjóðverjar ekki skilið það? Hérna í Costa Calma eru sko bara þjóðverjar, öll skilti og auglýsingar eru á þýsku og allir ættlast þeir til að maður tali þýsku!!! Ég er bún að komast að því að Þjóðverjarnir eru að reynað taka yfir heimin, aftur, þeir bara gefast ekki upp. Akkru geta þeir ekki bara lært ensku ensog venjulegt fólk. Neinei það eiga allir að læra þýsku. Ég ættla að farað krefjast þess að allir fari að læra íslensku!!! Áfram Ísland!!!
Allavega nó af því að vera bitur. Við erum semsagt komin til Costa Calma, erum búin að vera í tæpa viku og erum sko ekki að fíla þetta!!! Það er ekkert að gera hérna, það eru bara hótel og 3 “moll”. Þessi moll eru lélegusta afsakanir fyrir molli sem ég hef séð!!! Við getum orðað þetta svona, það er hægt að versla meira á Húsavík en í þessum mollum til samans. Nema þér finnist einstaklega skemmtilegt að versla sígarettukarton, vín og já ekkert meira...
Við erum búin að hafa samband við skólan og ættlum aftur til Puerto de la Cruz í skólan í nokkrar vikur og so ættlum við nú bara að koma heim. Það verður fínt.
En þetta ferðalag er samt búið að vera ferlega fínt, vorum alveg að fíla okkur í Puerto sko, kynntumst helling af skemmtilegu fólki, lærðum spænsku og workuðum tanið!!! :)
En þetta er komið nóg í bili
Adios
Jara

